
← Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms24 août · 1 h 13 min
Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu
👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan?
Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra Hrafnistu, sem hefur áratuga reynslu af öldrunarþjónustu og einstaka innsýn í það sem þarf að breytast.
Við lifum lengur, eldri borgurum fjölgar hratt og álagið á kerfið mun aukast verulega á næstu árum. María Fjóla er skýr: kerfið verður að breytast.
En hvernig?
🏡 Verður framtíðin fólgin í meiri þjónustu inn á heimilin?🤖 Getur tæknin hjálpað okkur að búa lengur sjálfstætt?💪 Hvað getum við sjálf gert í tíma til að undirbúa efri árin?❤️ Hversu mikilvæg eru hreyfing, félagsleg tengsl, húsnæði og lífsgæði þegar við eldumst?👥 Og hvernig getur samfélagið brugðist við fjölgun aldraðra án þess að gæði þjónustunnar skerðist?
Við tölum líka um það sem kannski fáir vilja hugsa um fyrr en nauðsyn krefur: Hvernig viljum við sjálf hafa það þegar við verðum 80, 90 ára eða eldri? Og hvað getum við gert í dag til að eiga meiri möguleika á sjálfstæði og góðum lífsgæðum síðar?
Hugvekjandi og mikilvægt samtal um mál sem snerta okkur öll – því öldrunarþjónusta framtíðarinnar snýst ekki bara um „aldraða“. Hún snýst um framtíð okkar allra. 🌿
🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins
Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn:
🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb.
🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn)
🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is