Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

← Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms5 okt · 2 u 22 min

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein5 okt2 u 22 min

🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf?🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi?🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur unnið með þúsundum sjúklinga séð í eigin starfi?

Gestur okkar í Heilsuhlaðvarpinu er Dr. Bonni Goldstein, bandarískur barnalæknir og einn þekktasti sérfræðingur heims á sviði kannabínóíðalækninga.

👩‍⚕️ Bonni kemur úr mjög hefðbundnum læknisfræðilegum bakgrunni. Hún lærði barnalækningar, starfaði á Children’s Hospital Los Angeles, var þar Chief Resident og vann síðar á bráðamóttöku barna.

En vegferð hennar tók óvænta stefnu þegar hún varð vitni að því hvernig alvarlega veikur vinur hennar fékk mikinn ávinning af kannabis. Það varð til þess að hún fór sjálf að kafa ofan í rannsóknirnar – og uppgötvaði heilan heim sem hún hafði fengið litla fræðslu um í læknanámi.

🌱 Frá árinu 2008 hefur Bonni unnið með þúsundum sjúklinga, bæði börnum og fullorðnum, sem glíma meðal annars við flogaveiki, einhverfu, krabbamein, langvinna verki og ýmsa flókna sjúkdóma og kvilla.

🎙️ Í þættinum ræðum við meðal annars:

🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið og hvers vegna skiptir það máli fyrir starfsemi líkamans?

🌿 Hvernig hafa THC, CBD og önnur kannabínóíð áhrif á líkamann?

🔬 Hvað segja rannsóknirnar í raun um kannabis til lækninga?

👶 Hvað hefur Bonni séð í starfi sínu með börnum með erfiða og flókna sjúkdóma eins og krabbameina, margs konar taugasjúkdóma og taugaþroskaraskanna eins og einhverfu?

💊 Getur kannabis í einhverjum tilfellum hjálpað fólki að minnka notkun annarra lyfja?

⚠️ Hvaða áhætta og aukaverkanir fylgja kannabisnotkun í lækningaskyni?