
← Þjóðmál13 okt · 1 u 05 min
#466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma
#466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma
<p>Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar, ástæður þess að ráðist var í húsleit hjá félaginu fyrir helgi og tilraunir til útrásar með Collab, sem hefur reynst erfiðari en vonir stóðu til. Þá er einnig fjallað um loðnumælingar Hafró og möguleg áhrif hennar á hagkerfið, hik í sjávarútvegi til að fjárfesta í kjölfar skattahækkunar í fyrra, stöðuna á hlutabréfamarkaði eins og hún blasir við núna, hvernig horfurnar kunna að vera með nýjum félögum á markað og fleira. </p>