Samstöðin

← Samstöðin18 okt · 2 u 08 min

Synir Egils 18. okt - Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka

Synir Egils 18. okt - Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka18 okt2 u 08 min

Sunnudagurinn 18. október

Synir Egils: Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka

Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og ræða ágreining innan Viðreisnar og Alþýðusambandsins, okur og fákeppni, stöðu stjórnar og flokka og margt annað. Þá kemur nýr forseti Alþýðusambandsins að borðinu, Georg Páll Skúlason, og ræðir um stöðu ASÍ við bræðurna og Sigurð Pétursson sagnfræðinginn sem er manna fróðastur um sögu verkalýðsbaráttunnar. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.